Jæja. Aldrei of seint að koma aftur. Hvað eru fimm mánuðir milli vina.
Það er náttúrulega góð tímasetning enda HM í fótbolta að hefjast í dag. Leikirnir verða spilaðir daglega kl. 11:30, 14:00 og 18:30 og er í boði þessi rosalegasta veisla sem knattspyrnuáhugamenn hafa verið að dreyma um. Opnunarleikurinn er nú ekkert svaka show en það er leikur Suður-Afríku (heimamanna) og Mexíkó. Svo mætast Úrúgvæ og Frakkar.
Mexíkó hefur staðið sig vel og eru með geysisterkt lið. Hef fulla trú á þeim í þessum fyrsta leik og ættu að klára hann. Svo lengi sem Ísland getur unnið S-Afríku, þá ætti hver önnur þjóð í þessari keppni að geta gert það. Heimavöllurinn telur ekkert. En óvænt úrslit hafa nú skeð í opnunarleik svo ekkert er hægt að útiloka. Þetta er fótbolti.
Seinni leikurinn væri hægt að kalla einn af stórleikjum riðilsins. Frakkar að sjálfsögðu án margra lykilmanna þar sem Domenech, þjálfari var ekki að velja mikið af stjörnunum. Valdi frekar þessa sem eru í formi. Benzema og Ben Arfa voru eftir heima td. En þegar maður rúllar yfir hópinn þeirra er maður meira gapandi því liðið er frekar sterkt. Eitthvað segir mér samt að þeir misstíga sig á þessu móti og geri jafntefli við Úrúgvæjana. Forlan með þrennu?
Reykjavíkurmótið í knattspyrnu er núna nýhafið með tveimur leikjum. Valur tapaði fyrir Víking Reykjavík 1-2 og KR-ingar unnu ÍR-inga 3-1. Önnur lið í mótinu eru Fjölnir, Fylkir, Leiknir R., Fram en þau spila saman í riðli. Þróttur R. er svo með hinum liðunum en sat hjá vegna þess þeir eru 5. liðið. Þar sem að þetta er nú Reykjavíkurmót þá má kannski bæta því við að nýja stórlið Reykjavíkur, Knattspyrnufélag Vesturbæjar (KV) ætti nú alveg heima á þessu móti. Flott að hafa 10 Reykjavíkurlið í þessu móti og gefa þessum óreyndari reynslu.
Ég myndi segja að Reykjavíkurmótið sé að einhverju leyti upphaf tímabilsins hjá liðunum. Eftir að hafa verið að spila æfingaleiki í nóvember og desember þá fá þeir smá mót í æð og taka leikjunum eflaust með meiri ákveðni og alvöru heldur en æfingaleikina.
Fylkir á næsta leik á móti Leikni á fimmtudagskvöldið og Fram á svo Fjölni fljótlega.
Valsmenn virðast vera í bölvuðum vandræðum en Víkingur hefur staðið sig vel undanfarið en Helgi Sigurðsson er kominn í herbúðir Víkinga og verður gaman að sjá hvernig þeir plumma sig í þessu móti. ÍR unnu þetta mót 2008 og hafa alltaf komið skemmtilega á óvart í þetta mót en veit ekki hvort þeir fylgja því eftir hér eftir frekar dapurt tímabil á síðustu leiktíð. KR-ingar eru frekar solid, eru að reyna að kaupa þennan japanska markmann sinn og eiga örugglega bara eftir að klára þetta mót aftur en þeir unnu í fyrra. Leiknismenn hafa komið ágætlega út úr æfingaleikjunum sínum en hafa fengið nokkra seiga leikmenn fyrir næsta tímabil og hef ég lúmskan grun um að Fylkismenn lendi í basli með þá. Aðallega eftir stórtap þeirra á móti ÍA á dögunum 6-0. Fylkir spiluðu þó engan æfingaleik fyrir áramót svo leikformið þeirra er kannski verra en hjá sumum liðum eins og KR sem spiluðu 6 eða 7. Svo er örugglega smá stress í Fjölnismönnum þar sem þeir misstu Gunnar Már til FH. Veit ekki með Fram, þeir hafa reyndar verið að semja við marga af þeim sterku leikmönnum sem þeir voru með í fyrra eins og Hjálmar og Almarr svo þetta gæti verið fróðlegt hvernig þessir leikir spilast út.
Ætla að tippa á að KR og Víkingur R. vinna sína riðla og mæta Fram og Leikni í undanúrslitum. Er nú samt Fylkismaður en þeir ætla að gefa soldinn skít í þetta og bara fá sér leikæfingu. KR mætir Leikni í undanúrslitum og Fram mæti Víking. KR tekur Leikni og Víkingur tekur Fram. Þannig það verða KR og Víkingur sem spila til úrslita.
Deildarbikarinn byrjar 20. febrúar (eða Lengjubikarinn) með leik ÍA og Njarðvíkur upp á Skaga. Sú keppni verður fróðleg og þá fara liðin að gefa í gírinn.
Hvert mannsbarn ætti að þekkja Facebook. Ekki bara beint staður til þess að bara setja statusinn þinn því að Facebook er svo miklu miklu meira. Þeir hafa verið að staðsetja sig sem svona persónu-auðkenni netsins en þeir hafa verið að kynna mikið fyrir vefsíðueigendum Facebook Connect. Gott dæmi um það eru fréttir á dv.is en neðst á hverri frétt er hægt að gera athugasemd ef þú tengir Facebook prófílinn þinn við síðuna og þá ábyrgistu að þú ert að gera þessa athugasemd með þínu nafni. Svo Facebook er orðið miklu meira en bara einhver síða til að þú getur haldið sambandi við vinina.
Það sem ég ætla hinsvegar í dag er að í gær tilkynntu Facebook menn að þú getur notað tölvupóstinn þinn við að svara öllum áminningum/notifications af Facebook með því að svara tölvupóstinum þínum. Þar með ef einhver skrifar á vegginn þinn, gerir athugasemdir við statusinn þinn eða gerir athugasemd við myndirnar þínar eða myndir sem þú hefur gert athugasemd við þá getur þú einungis svarað tölvupóstinum og þitt svar er þá komið inn. Þú þarft þú að stilla allar tölvupóstastillingarnar þínar en gættu þín þó því að ef þú leyfir of mikið af póstum þá er auðvelt að fá heila flóðið af tölvupóstum.
Þetta gæti verið tilvalið fyrir fólk í vinnu sem vill ekki virðast vera að hanga á Facebook og getur því þóst bara verið að svara tölvupóstum (sem eru þá í rauninni viðbrögð þín við aðgerðum vina þinna). Þetta er einnig hentugt í prófum svo maður dettur ekki bara í eitthvað hangs og endar á því að skoða myndaalbum hjá einhverjum sem þú hefur aldrei séð áður af því þú þekktir Tómas sem var taggaður í albuminu. Þannig þetta er að mér finnst eiginlega bara frábær hugmynd hjá Facebook.
* Það fór víst ekki framhjá neinum að Google er kominn á farsímamarkaðinn. Hann heitir Nexus One og er gerður af HTC.
* Patrick Viera er kominn aftur til Englands. Hann mun spila með þeim ljósbláu í Manchester, Manchester City.
* Meira um England en einhver almesta snjókoma síðari ára gengur nú yfir á Englandi og þurfti að fresta öllum leikjum helgarinnar nema tvem sem enduðu báðir jafntefli.
* Gaman að segja frá því að Wigan átti að spila við Aston Villa en honum var frestað líka á laugardagsmorgun þar sem að hitar
* Veðmál á knattspyrnuleiki hér heima var í umræðunni í útvarpsþætti Fótbolta.net. Hringt var í mig þar sem vinnan mín tengist ágætlega inn á það svið. Einnig var talað við Birki Sveinsson mótastjóra KSÍ. Hlusta má á viðtalið hér.
* Ein vika er í frumsýningu 8. seríu af 24 og um 3 vikur í að seinasta serían af Lost hefst. Þess má geta að Chuck snýr aftur í dag.
* Apple mun á næstu dögum kynna snertiskjá sem er lítill og meðfærilegur. Einskonar “tablet” eins og þeir kalla þetta úti. Hugmyndir má sjá hér.
* Afríkukeppnin hófst í gær með opnunarleik Angóla og Malí sem hljómaði nú ekkert spennandi í fyrstu en endaði 4-4 eftir að Angóla komst í 4-0.
* Guðmann Þórisson fyrrverandi leikmaður Breiðablik gekk til lið við Nybergsund Trysil í Noregi. Nybergsund spilar í Adeccoligaen í Noregi (B deild) en liðið leikur heimaleiki sína í Trysil sem er bær í Austur-Noregi. Bær? Jújú, aðeins 7000 manna bær í Noregi.
Landslið Tógó (Emmanuel Adebayor) hefur hótað því að draga lið sitt úr Afríkukeppninni frægu sem spiluð er á tveggja ára fresti eftir að angólísk hryðjuverkahreyfing réðst á rútu landsliðsins og særði sex þar af tvo leikmenn Tógó.
Fréttir herma að Tógó hafa dregið lið sitt til baka en að knattspyrnusamband Tógó á bara eftir að staðfesta það og það sé væntanlegt síðar í dag.
Tógó voru í riðli með Fílabeinsströndinni, Búrkína Fasó og Ghana . Þetta er að sjálfsögðu leiðinlegt fyrir þessa annars skrýtnu keppni en bíst ég ekki við að önnur lönd dragi sig úr keppninni.
Keppnin er afar umdeild, aðallega útaf því að hún er leikin í janúar – á miðju tímabili stærstu deildanna.
Egyptaland hefur unnið seinustu tvær keppnir en afar líklegt er að Fílabeinströndin vinni í ár þar sem leið þeirra í úrslitin virðist hindrunarlítil en hafa þeir náð að koma sér oft í vandræði á mótinu og myndi ég ekki tippa á þá.
Kamerrúnar hafa verið í lægð seinustu ár og fengu auðveldan riðil og gætu vel ógnað, jafnt og klárað mótið.
Mótið hefst á morgun, sunnudag kl. 19 (held ég) með opnunarleik og stórleik Angóla og Malí. Aldrei að vita nema Sissoko minn setji eitt.
WOT er eiginlega nauðsynlegt finnst mér fyrir hinn almenna vafrara/notanda. WOT kemur sem aukaviðbót við þinn vafra(Internet Explorer/Firefox). Ég nota Firefox og er með þetta sem viðbót við þann vafra.
Web of Trust sýnir okkur traust annarra notanda við viðkomandi heimasíðu. Segjum að þú ert að Googlea klámsíðu. Kæru kvenlesendur þá vitum við öll að karlmenn hafa sýnar þarfir en þetta er fullkomið dæmi. Mikið af heimasíðum á netinu sem reyna að tengja sig við klám eru oft hættulegar og geta skaðað tölvuna manns með allskyns bulli. WOT varar þig við á Google hvort heimasíðan sé traust eða hvort hún gæti verið hættuleg, jafnvel skaðleg fyrir tölvuna þína. Hér að neðan má sjá dæmi.
Hér má sjá dæmi þar sem talað er um screensavera. Efsta Google niðurstaðan er þá bara að segja að þessi síða er ekki traust og það er ekki mælt með að þú farir inn á viðkomandi síðu. Niðurstaða 2 gefur í skyn um eitthvað óöryggi en oft má telja gulan í lagi. Græn “kúla” þýðir að þetta sé fullkomlega traust síða og ekkert skaðlegt við hana.
Svo á hvaða síðu sem þú ert á er svo birt viðkomandi kúla í þínum vafra þegar þú setur upp viðbótina. Svo getur þú gefið einkunn fyrir þær síður sem þú vafrar á svo þú lætur notendur í kringum þig verða var við hversu traust viðkomandi síða er.
Annað dæmi er frétt Morgunblaðsins um heimasíðu sem heitir bookinhotels.com. Hún hefur svikið nokkra Íslendinga þar sem ekki virkaði fyrir þá að bóka hótel á viðkomandi síðu. Skv. MBL er þetta eitthvað tyrkneskt fyrirtæki sem er allaveganna ekki mikið að bóka hótel fyrir viðskiptavini sína. Þegar ég reyni að fara inná þessa síðu segir WOT mér að þessi síða sé ekki traust svo að sjálfsögðu er ég ekkert að plata mig lengra og loka glugganum.
Web of Trust hjálpar þér ekki bara að komast framhjá svikahreppum, vírusum og öðrum óþrjótum heldur það er svo miklu miklu meira. (Hljóma eins og einhver frábær uppþvottaefnisauglýsing)
Mæli hiklaust með að þú bætir þessu í safnið þitt.
Er nú í fyrsta lagi gullfallegt. En ætla nú ekki að tala um það.
Ég skora á núverandi forsætisráðherra að spila knattspyrnuleik. Hún gæti spilað með öðrum stórráðherrum í kringum heiminn. Persónulega hefði ég enga trú á henni, aðallega af því að hún þyrfti örugglega túlk til að elta hana út allan leikinn.
En tölum ekki um það. Þrátt fyrir að Jóhanna vinkona mín telst undir íslenskt kvenfólk þá ætla ég ekki í stjórnmálaumræður.
Mig langaði aðeins að vekja athygli á íslenskri kvennaknattspyrnu. Það hefur löngum sést að kvennalandsliðið okkar er í augnablikinu líklegra til árangurs heldur en það karla og það er ekkert sem þarf að kynna.
Það sem mig langar að koma inná er hlutur sem kannski fólk gerir sér ekki grein fyrir en er að sama skapi líklega drullusama um. Samkvæmt stuðlakerfi UEFA er íslenska kvennadeildin áttunda sterkasta kvennadeild í Evrópu. Stuðlakerfi UEFA er mjög flókið en það virkar þannig að árangur liða í Evrópukeppnum er tekinn saman og lagður saman og hverju landi er gefinn stigafjöldi samkvæmt árangri þeirra liða á hverju ári. Stuðlakerfið styðst svo aðeins við árangur þeirra liða seinustu 5 ár.
UEFA notar svo þetta svokallaða stuðlakerfi (coefficient) til að raða niður hverju landi inn í Evrópukeppnirnar. Þeir hafa eitt stuðlakerfi fyrir karlana og annað fyrir konurnar. Konurnar hafa reyndar bara eina Evrópukeppni en karlarnir tvær.
Í lista sem gefinn var út fyrir næsta tímabil fór eins og áður segir íslenska kvennadeildin í áttunda sæti (voru í 9. sæti árinu áður). Þar með fékk Ísland tvö sæti í Evrópukeppni kvenna í stað aðeins eins. Þar með fer Breiðablik ásamt Val í Evrópukeppni kvenna á næsta ári. Blikar þurfa þó að spila í undanriðlum en Valsmenn fara eins og í fyrra beint í 32 liða úrslit keppninnar.
Það sem ég er í rauninni að setja áherslu á er hversu sterk íslenska kvennadeildin er á evrópskum mælikvarða. Ef við myndum bera saman listann við karlalistann að þá segir hann okkur að úrvalsdeild Hollands sem geymir lið eins og PSV, Ajax og AZ Alkmaar til dæmis er í sama sæti og íslenska kvennadeildin. Allar sambandsþjóðir UEFA eru þó ekki með kvennadeild en það breytir engu máli.
Annað sem ég gæti komið inná væri að íslenska kvennadeildin er sterkari en spænskakvennadeildin. Á Spáni búa rúmlega 46 milljónir en á Íslandi í kringum 316 þúsund manns. Þar af eru kannski 160 þúsund kvenmenn.
Þetta eru í rauninni skemmtilegar staðreyndir og virkilegt hrós fyrir íslenska kvennaknattspyrnu og ég vona svo sannarlega að hún heldur þessum standard því aldrei hafa verið fleiri íslensk lið (karla&kvenna) í Evrópukeppni en á næsta ári (2010). Held að það sé löngu komin pressa á karlana.
Með þessum orðum vill ég óska einnig öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Ég mun snúa aftur 5. janúar eldhress og fullur af fróðleik.
Það er kannski ekkert nýtt að það sé hægt að leita að torrentum einhversstaðar en margar síður í dag bjóða uppá það eins og Torrentz, SumoTorrent og svo má lengi telja. TorrentMagnifier er hinsvegar nýjung. Hún bíður upp á forrit fyrir tölvuna þína, svokallaðan desktop client svo þú getur leitað í tölvunni þinni.
TorrentMagnifier er virkilega einfalt, þarft einungis að byrja að leita og þegar þú finnur það sem þú ert að leita lætur forritið þig á réttan stað svo þú getur náð í viðkomandi torrent.
Ætti ekki að vera svo flókið fyrir þig. Náðu í µtorrent með þessu og þú ert good to go.
Eitt sem ég hef gífurlegan áhuga á í sambandi við fótboltann eru allir þessi drættir sem eru í kringum allar fótboltakeppnirnar. UEFA stendur sig sérstaklega vel í að upplýsa almenning um þessa drætti í beinni. Alveg frá þeim umferðum sem íslensku liðin koma inn í evrópumótin(Meistaradeild Evrópu / Europa League) svo það ætti að vera auðvelt fyrir mann að fá þetta beint í æð.
Þrátt fyrir þennan áhuga gerði ég ekki einu sinni tilraun til að reyna að fylgjast með þegar dregið var í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu og 32-liða úrslit Europa League á sl. föstudag. Mínir menn(Liverpool) ekki í réttum potti en fengu aftur á móti þátttökurétt í Europa League þar sem þeir mæta rúmensku meisturunum Unirea.
Ég ætla snöggt að renna yfir báða drættina.
Meistaradeild Evrópu – 16 liða úrslit
Tölurnar í sviganum merkja stuðlana hjá veðbönkum yfir hvort liðið sé líklegra til að komast áfram. Nánar um stuðla hér
AC Milan(2,75) – Manchester United(1,5)
Hrikalega áhugaverður slagur. Manchester verður að teljast líklegri mennirnir ef þeir verða ekki með Fletcher í miðverði en AC Milan hefur átt mjög gott tímabil, loksins eiginlega. Þeir hafa alltaf verið stórlið en loksins á þessu tímabili hafa þeir blómstrað og eru nokkrum stigum á eftir Inter Milan í ítölsku í dag. Man Utd þarf ekki að kynna til sögunnar, eiga að taka þetta en þetta verður langt í frá að vera auðvelt. Ég persónulega hata ítölsku deildina og hata AC Milan mögulega meira en Manchester United svo ég vona bara að Manchester menn taki þennan.
Lyon(3,75) – Real Madrid(1,36)
Þrátt fyrir að halda með Lyon í frönsku og Fiorentina í ítölsku telur það ekki þar sem ég er Liverpool maður. Þessi tvö fyrrgreindu hentu Liverpool í Europa League. Lyon hafa alltaf verið með sterkan mannskap en eru í geysilegu basli þetta tímabil. Real eru á siglingu og eiga eftir að sýna styrk sinn. Engin spurning hér.
Porto(3,25) – Arsenal(1,4)
Porto, lið sem er alltaf þarna en getur svo aldrei neitt nema hvað einu sinni þegar þeir nældu í Meistaradeildarbikarinn í drepleiðinlegum úrslitaleik við Monaco árið áður en Liverpool vann Milan. Ef ég man rétt þá var það undir stjórn Mourinho. Allaveganna þá hafa Arsenal átt bara frekar gott tímabil og eru í baráttunni í Englandi. Porto stóðu sig vel í riðli með Chelsea og eru með yfirburðalið. Ég segi að þessi viðureign verði erfið fyrir Arsenal. Vela skorar dýrmætt útimark í Portúgal sem kemur honum á blað hjá stuðningsmönnum Arsenal. Ég er virkilega hrifinn af þeim dreng.
Bayern Münich(1,62) – Fiorentina(2,5)
Eftir því sem ég held áfram að skrifa þá verða viðureignirnar eiginlega bara áhugaverðari. Fiorentina hafa verið mjög sterkir í ár og þeir munu ekki gefa neitt eftir við stríða þýsku stórmeisturunum. Bayern hafa verið með mikið maus í fjölmiðlum. Ribery með eitthvað væl undanfarið og þeir sitja nú í 3. sæti þýsku að elta Leverkusen. Ég held að Fiorentina taki þetta. Eru með ungan en samt sem áður mjög sterkan mannskap. Stríða Bayern mönnum og senda þá heim þar sem þeir klára deildina.
Olympiakos(2,7) – Bordeaux(1,53)
Ég sem hélt að viðureignirnar væru að fara upp á við en svo sannarlega er þetta ein sú leiðinlegasta sem ég hef séð. Bordeaux hafa verið magnaðir í ár. Þeir klára þetta auðveldlega.
Stuttgart(7,00) – Barcelona(1,14)
Barcelona eru að spila fótbolta sem varla er hægt að líkja við neitt annað. Þeir klára þetta þrátt fyrir að Stuttgart liðið hefur sýnt þrautseigju í Meistaradeildinni en það þyrfti að gefa þeim bleiju til að gera eitthvað í þýsku deildinni.
Inter Milan(2,63) – Chelsea(1,55)
Söss! Þessi verður rosaleg. Chelsea hafa verið að gera ágæta hluti undanfarið og Drogba er óstöðvandi. Hópurinn þeirra náttúrulega mannskemmandi leiðinlegur en virkar.
Inter Milan eru alltaf með rosalegan hóp. Mario Balotelli er strákur sem við munum sjá meira af á næstu árum. Sama segi ég með David Santon. Tvö ítölsk efni sem verður gaman að sjá hvað verður úr.
Þjálfarar liðanna ættu að þekkja hvorn annan. Ancelotti var með Milan í fyrra og Mourinho hitti hann mjög líklega á San Siro.
Ég segi Inter hér þrátt fyrir að það kæmi mér ekkert á óvart að það væri rangt. Hérna byrjar Chelsea að síga niður töfluna í Englandi og úr Meistaradeildinni.
CSKA Moskva(3) – Sevilla(1,4)
Ég er að fara á Atletico Madrid v Sevilla 3. janúar næstkomandi í Madrid og hafa bæði þessi lið verið með drulluna eiginlega á tímabilinu. Atletico Madrid tapa og tapa í deildinni og gátu ekkert í Meistaradeildinni en fóru í Europa League af því þeir unnu APOEL frá Kýpur.
CSKA eru þó sterkir svo þá má ekki útiloka. Unnu Man Utd á Old Trafford (jaja varalið blabla) en samt sterkt að koma og ná í þrjú þar.
Held að flestir bendli Sevilla hér við sigur en ég segi að Rússarnir fái einhverja heppni með sér og kræki sér áfram í 8-liða úrslit þar sem þeir segja bless. Kemur mér þó á óvart hversu fínn stuðull er á Rússunum. Áhættan er þess virði.
Potturinn minn þá fyrir 8-liða verður:
CSKA Moskva, Inter Milan, Manchester United, Arsenal, Bordeaux, Fiorentina, Real Madrid og Barcelona.
Europa League 32-liða úrslit:
Held ég taki þetta í styttra lagi.
Everton – Sporting
Everton búnað vera í basli og kveðja hér.
Hertha Berlin – Benfica
Hertha neðstir í þýsku og ekkert sem gömlu góðu Benfica ráða ekki við.
Atletico Madrid – Galatasaray
Þetta verður flott viðureign. Ég held að ef Agüero fer ekkert þá klári þeir Kewell og Baros en það veltur mikið á leiknum í Madrid þar sem Tyrkirnir eru þekktir fyrir erfiðan heimavöll.
Ajax – Juventus
Juventus á þetta en gamlir erkifjendur mætast hér og Ajax are no pushoves.
Club Brugge – Valencia
Mínir menn klára þetta auðveldlega.
Rubin Kazan – Hapoel Tel-Aviv
Rússarnir sterkir og klára frændur Benayoun.
Villarreal – Wolfsburg
Þetta held ég að Þjóðverjarnir taki.
Standard Liege – Salzburg
Þessi gæti orðið fróðleg. Salzburg rústaði sínum riðli í UEFA og held ég að þeir fari til Belgíu og sýni það að Austurríki eigi klárlega nokkra markheppna í skápnum hjá sér.
Twente – Werder Bremen
Werder á þetta, samt ekki auðveldlega.
Lille - Fenerbache
Mér finnst Lille ættu að geta unnið Fenerbache hérna. Þeir setja eitt í Tyrklandi í seinni leiknum sem klárar þennan leik eftir 0-0 í Frakklandi.
Athletic Bilbao – Anderlecht
Bilbao klikkar hér og skorar 2 sjálfsmörk. Gefur Anderlecht frímiða áfram.
FC Köbenhavn – Marseille
Marseille ætti að klára Danina en ég vona nú að þeir gefi ekkert eftir.
Panathinakos – Roma
Roma hefur verið í vandræðum en þeir vinna þetta 1-0 samanlagt.
Fulham - Shakhtar Donetsk
Fulham hafa nú verið á skriði undanfarið. Þeirra heimavöllur er orðin algjör gryfja skv. tölfræði og þeir nota hann hér og slá Shakhtar út.
Liverpool - Unirea
Ég ætla ekki einu sinni að reyna að sannfæra fólk um að þetta sé öruggt hjá Liverpool en að sjálfsögðu get ég ekki annað sagt nema vonað það. Þeir verða búnað snúa við blaði eftir áramót og fljúga í gegnum þessa keppni eins og fugl.
FileHippo.com er síða sem allir ættu kynnast.
Hún er hefur að geyma nytsamlegan ókeypis hugbúnað fyrir Windows. Þú ættir að geta fundið eitthvað þarna fyrir þig til að fullnýta möguleika tölvunnar. Allt mögulegt í boði en mikið af tölvunotendum í dag reyna eingöngu að styðjast við ókeypis hugbúnað.
Þú þarft ekki lengur að kaupa Office pakkann frá Microsoft þar sem þú getur náð í ókeypis OpenOffice til dæmis. Þú getur fengið einfaldar og mjög góðar vírusvarnir í dag ókeypis en FileHippo er með þetta allt…. ókeypis.
Þetta er Dexter Morgan. (leikinn af Michael C. Hall).
Ég ætla nú að koma smá inn á sjónvarpsþætti þar sem ég horfi gígantískt mikið á sjónvarpsþætti.
Ég tel að flestir þekki Dexter. Showtime í USA hafa keyrt fjórar seríur af kauða en þær eru hugmynd Jeff Lindsay. Jeff hefur skrifað fjórar bækur um kauða og sú fimmta á leiðinni.
Þættirnir hafa vakið gífurlega lukku og Michael er ótrúlegur í sínu hlutverki enda verið tilnefndur til Golden Globe verðlaunanna fyrir allar þrjár seríurnar en sú fjórða var að klárast í gær í USA. 2,1 milljón Bandaríkjamanna horfðu á lokaþáttinn sem er met í sögu þáttanna.
Allar seríurnar hafa verið ótrúlega áhugaverðar og það er ótrúlegt hvað þær verða bara betri og betri. Fjórða serían var fáránlega góð og set ég hana klárlega á lista yfir bestu 10 seríur sem ég hef séð.
Ég get staðfest við ykkur lesendur góðir að fimmta sería af Dexter er væntanleg en dagsetning er ekki komin á blað. Líklegt haustið 2010.
Fyrir þá sem þekkja ekki Dexter þá er um að gera að fara að gera eitthvað í þeim málum.
Ég veit ekki alveg hvað gerðist fyrir Lehmann en eftir að hann kom í Stuttgart þá hefur hann ákveðið að verða bara geðveikur eða eitthvað. Ég veit ekki hvað er málið eða hvort þetta sé bara eitthvað gen sem þýskir markmenn fá í þýsku Bundesligunni en Lehmann hefur fengið nokkur youtube video á sig undanfarið.
Hér er fyrsta, reyndar á seinustu leiktíð en Stuttgart að spila við Hoffenheim. Einn leikmaður Hoffenheim missir skóinn og Lehmann ákveður að fleygja skónum yfir markið sitt.
Næsta aðeins í seinustu viku eða svo þegar Lehmann ákveður að míga í miðjum leik.
Alveg ótrúlegur. Og svo núna um helgina fær hann rautt fyrir þetta fáránlega atvik.
Ekki mikill meistari fyrir mér en samt sem áður, alltaf gaman af Jens Lehmann.