Reykjavíkurmótið í knattspyrnu er núna nýhafið með tveimur leikjum. Valur tapaði fyrir Víking Reykjavík 1-2 og KR-ingar unnu ÍR-inga 3-1. Önnur lið í mótinu eru Fjölnir, Fylkir, Leiknir R., Fram en þau spila saman í riðli. Þróttur R. er svo með hinum liðunum en sat hjá vegna þess þeir eru 5. liðið. Þar sem að þetta er nú Reykjavíkurmót þá má kannski bæta því við að nýja stórlið Reykjavíkur, Knattspyrnufélag Vesturbæjar (KV) ætti nú alveg heima á þessu móti. Flott að hafa 10 Reykjavíkurlið í þessu móti og gefa þessum óreyndari reynslu.
Ég myndi segja að Reykjavíkurmótið sé að einhverju leyti upphaf tímabilsins hjá liðunum. Eftir að hafa verið að spila æfingaleiki í nóvember og desember þá fá þeir smá mót í æð og taka leikjunum eflaust með meiri ákveðni og alvöru heldur en æfingaleikina.
Fylkir á næsta leik á móti Leikni á fimmtudagskvöldið og Fram á svo Fjölni fljótlega.
Valsmenn virðast vera í bölvuðum vandræðum en Víkingur hefur staðið sig vel undanfarið en Helgi Sigurðsson er kominn í herbúðir Víkinga og verður gaman að sjá hvernig þeir plumma sig í þessu móti. ÍR unnu þetta mót 2008 og hafa alltaf komið skemmtilega á óvart í þetta mót en veit ekki hvort þeir fylgja því eftir hér eftir frekar dapurt tímabil á síðustu leiktíð. KR-ingar eru frekar solid, eru að reyna að kaupa þennan japanska markmann sinn og eiga örugglega bara eftir að klára þetta mót aftur en þeir unnu í fyrra. Leiknismenn hafa komið ágætlega út úr æfingaleikjunum sínum en hafa fengið nokkra seiga leikmenn fyrir næsta tímabil og hef ég lúmskan grun um að Fylkismenn lendi í basli með þá. Aðallega eftir stórtap þeirra á móti ÍA á dögunum 6-0. Fylkir spiluðu þó engan æfingaleik fyrir áramót svo leikformið þeirra er kannski verra en hjá sumum liðum eins og KR sem spiluðu 6 eða 7. Svo er örugglega smá stress í Fjölnismönnum þar sem þeir misstu Gunnar Már til FH. Veit ekki með Fram, þeir hafa reyndar verið að semja við marga af þeim sterku leikmönnum sem þeir voru með í fyrra eins og Hjálmar og Almarr svo þetta gæti verið fróðlegt hvernig þessir leikir spilast út.
Ætla að tippa á að KR og Víkingur R. vinna sína riðla og mæta Fram og Leikni í undanúrslitum. Er nú samt Fylkismaður en þeir ætla að gefa soldinn skít í þetta og bara fá sér leikæfingu. KR mætir Leikni í undanúrslitum og Fram mæti Víking. KR tekur Leikni og Víkingur tekur Fram. Þannig það verða KR og Víkingur sem spila til úrslita.
Deildarbikarinn byrjar 20. febrúar (eða Lengjubikarinn) með leik ÍA og Njarðvíkur upp á Skaga. Sú keppni verður fróðleg og þá fara liðin að gefa í gírinn.