Back

in Fótbolti

Jæja. Aldrei of seint að koma aftur. Hvað eru fimm mánuðir milli vina.

Það er náttúrulega góð tímasetning enda HM í fótbolta að hefjast í dag. Leikirnir verða spilaðir daglega kl. 11:30, 14:00 og 18:30 og er í boði þessi rosalegasta veisla sem knattspyrnuáhugamenn hafa verið að dreyma um. Opnunarleikurinn er nú ekkert svaka show en það er leikur Suður-Afríku (heimamanna) og Mexíkó. Svo mætast Úrúgvæ og Frakkar.

Mexíkó hefur staðið sig vel og eru með geysisterkt lið. Hef fulla trú á þeim í þessum fyrsta leik og ættu að klára hann. Svo lengi sem Ísland getur unnið S-Afríku, þá ætti hver önnur þjóð í þessari keppni að geta gert það. Heimavöllurinn telur ekkert. En óvænt úrslit hafa nú skeð í opnunarleik svo ekkert er hægt að útiloka. Þetta er fótbolti.
Seinni leikurinn væri hægt að kalla einn af stórleikjum riðilsins. Frakkar að sjálfsögðu án margra lykilmanna þar sem Domenech, þjálfari var ekki að velja mikið af stjörnunum. Valdi frekar þessa sem eru í formi. Benzema og Ben Arfa voru eftir heima td. En þegar maður rúllar yfir hópinn þeirra er maður meira gapandi því liðið er frekar sterkt. Eitthvað segir mér samt að þeir misstíga sig á þessu móti og geri jafntefli við Úrúgvæjana. Forlan með þrennu? ;)

Nóg af bulli í bili.

  • Facebook
  • Twitter
  • Google Bookmarks
  • Hotmail
  • Google Reader
  • Delicious
  • Windows Live Favorites
  • StumbleUpon
  • Share/Bookmark
0 Comments

Leave a Reply

Using Gravatars in the comments - get your own and be recognized!

XHTML: These are some of the tags you can use: <a href=""> <b> <blockquote> <code> <em> <i> <strike> <strong>