Íslenskt kvenfólk

in Fótbolti

Er nú í fyrsta lagi gullfallegt. En ætla nú ekki að tala um það.
Jóhanna

Ég skora á núverandi forsætisráðherra að spila knattspyrnuleik. Hún gæti spilað með öðrum stórráðherrum í kringum heiminn. Persónulega hefði ég enga trú á henni, aðallega af því að hún þyrfti örugglega túlk til að elta hana út allan leikinn.

En tölum ekki um það. Þrátt fyrir að Jóhanna vinkona mín telst undir íslenskt kvenfólk þá ætla ég ekki í stjórnmálaumræður.

Mig langaði aðeins að vekja athygli á íslenskri kvennaknattspyrnu. Það hefur löngum sést að kvennalandsliðið okkar er í augnablikinu líklegra til árangurs heldur en það karla og það er ekkert sem þarf að kynna.
Það sem mig langar að koma inná er hlutur sem kannski fólk gerir sér ekki grein fyrir en er að sama skapi líklega drullusama um. Samkvæmt stuðlakerfi UEFA er íslenska kvennadeildin áttunda sterkasta kvennadeild í Evrópu. Stuðlakerfi UEFA er mjög flókið en það virkar þannig að árangur liða í Evrópukeppnum er tekinn saman og lagður saman og hverju landi er gefinn stigafjöldi samkvæmt árangri þeirra liða á hverju ári. Stuðlakerfið styðst svo aðeins við árangur þeirra liða seinustu 5 ár.
UEFA notar svo þetta svokallaða stuðlakerfi (coefficient) til að raða niður hverju landi inn í Evrópukeppnirnar. Þeir hafa eitt stuðlakerfi fyrir karlana og annað fyrir konurnar. Konurnar hafa reyndar bara eina Evrópukeppni en karlarnir tvær.

Í lista sem gefinn var út fyrir næsta tímabil fór eins og áður segir íslenska kvennadeildin í áttunda sæti (voru í 9. sæti árinu áður). Þar með fékk Ísland tvö sæti í Evrópukeppni kvenna í stað aðeins eins. Þar með fer Breiðablik ásamt Val í Evrópukeppni kvenna á næsta ári. Blikar þurfa þó að spila í undanriðlum en Valsmenn fara eins og í fyrra beint í 32 liða úrslit keppninnar.

Það sem ég er í rauninni að setja áherslu á er hversu sterk íslenska kvennadeildin er á evrópskum mælikvarða. Ef við myndum bera saman listann við karlalistann að þá segir hann okkur að úrvalsdeild Hollands sem geymir lið eins og PSV, Ajax og AZ Alkmaar til dæmis er í sama sæti og íslenska kvennadeildin. Allar sambandsþjóðir UEFA eru þó ekki með kvennadeild en það breytir engu máli.
Annað sem ég gæti komið inná væri að íslenska kvennadeildin er sterkari en spænska kvennadeildin. Á Spáni búa rúmlega 46 milljónir en á Íslandi í kringum 316 þúsund manns. Þar af eru kannski 160 þúsund kvenmenn.

Þetta eru í rauninni skemmtilegar staðreyndir og virkilegt hrós fyrir íslenska kvennaknattspyrnu og ég vona svo sannarlega að hún heldur þessum standard því aldrei hafa verið fleiri íslensk lið (karla&kvenna) í Evrópukeppni en á næsta ári (2010). Held að það sé löngu komin pressa á karlana.

Með þessum orðum vill ég óska einnig öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Ég mun snúa aftur 5. janúar eldhress og fullur af fróðleik.

  • Facebook
  • Twitter
  • Google Bookmarks
  • Hotmail
  • Google Reader
  • Delicious
  • Windows Live Favorites
  • StumbleUpon
  • Share/Bookmark
0 Comments

Leave a Reply

Using Gravatars in the comments - get your own and be recognized!

XHTML: These are some of the tags you can use: <a href=""> <b> <blockquote> <code> <em> <i> <strike> <strong>