Nýr áratugur genginn í garð og já bara flott á það. Gleðilega hátíð.
Ég ætla að tala aðeins um WOT, eða Web of Trust.
WOT er eiginlega nauðsynlegt finnst mér fyrir hinn almenna vafrara/notanda. WOT kemur sem aukaviðbót við þinn vafra(Internet Explorer/Firefox). Ég nota Firefox og er með þetta sem viðbót við þann vafra.
Web of Trust sýnir okkur traust annarra notanda við viðkomandi heimasíðu. Segjum að þú ert að Googlea klámsíðu. Kæru kvenlesendur þá vitum við öll að karlmenn hafa sýnar þarfir en þetta er fullkomið dæmi. Mikið af heimasíðum á netinu sem reyna að tengja sig við klám eru oft hættulegar og geta skaðað tölvuna manns með allskyns bulli. WOT varar þig við á Google hvort heimasíðan sé traust eða hvort hún gæti verið hættuleg, jafnvel skaðleg fyrir tölvuna þína. Hér að neðan má sjá dæmi.

Hér má sjá dæmi þar sem talað er um screensavera. Efsta Google niðurstaðan er þá bara að segja að þessi síða er ekki traust og það er ekki mælt með að þú farir inn á viðkomandi síðu. Niðurstaða 2 gefur í skyn um eitthvað óöryggi en oft má telja gulan í lagi. Græn “kúla” þýðir að þetta sé fullkomlega traust síða og ekkert skaðlegt við hana.
Svo á hvaða síðu sem þú ert á er svo birt viðkomandi kúla í þínum vafra þegar þú setur upp viðbótina. Svo getur þú gefið einkunn fyrir þær síður sem þú vafrar á svo þú lætur notendur í kringum þig verða var við hversu traust viðkomandi síða er.
Annað dæmi er frétt Morgunblaðsins um heimasíðu sem heitir bookinhotels.com. Hún hefur svikið nokkra Íslendinga þar sem ekki virkaði fyrir þá að bóka hótel á viðkomandi síðu. Skv. MBL er þetta eitthvað tyrkneskt fyrirtæki sem er allaveganna ekki mikið að bóka hótel fyrir viðskiptavini sína. Þegar ég reyni að fara inná þessa síðu segir WOT mér að þessi síða sé ekki traust svo að sjálfsögðu er ég ekkert að plata mig lengra og loka glugganum.
Web of Trust hjálpar þér ekki bara að komast framhjá svikahreppum, vírusum og öðrum óþrjótum heldur það er svo miklu miklu meira. (Hljóma eins og einhver frábær uppþvottaefnisauglýsing)
Mæli hiklaust með að þú bætir þessu í safnið þitt.
