janúar 2010
Ég heiti Magnús Sigurbjörnsson.
Ég hef verið að blogga svolítið seinustu ár en hef nú tekið nýja stefnu. Hugur minn frá unga aldri hefur verið að fótbolta og nýrri tækni svo það ætla ég að koma inn á hér út frá minni hlið.
Ég er að ljúka BSc í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík á þessu ári.
Með náminu vinn ég fyrir austurrískt upplýsingafyrirtæki sem heitir RunningBall. Fyrirtækið sérhæfir sig í rauntímaupplýsingum af knattspyrnuleikjum en viðskiptavinir fyrirtækisins eru veðbankar og fjölmiðlar um allan heim. Mitt starf þar felst í að stýra hópi manna hér á landi, í Noregi og í Færeyjum að fara á fótboltaleiki og gefa fyrirtækinu tölfræðilegar upplýsingar í rauntíma um hvað er að gerast í leiknum. Einnig fer ég sjálfur á marga leiki heima.
Annars með bloggið þá ætla ég að reyna að fara í fótboltaheiminn með kannski öðrum augum og svo koma inn á tæknina þar á milli ásamt öðru.
Endilega skellið á mig línu ef það er eitthvað. Netfangið er maggi(at)maggi.is
Magnús Sigurbjörnsson